NR. 54 HURÐASKELLIR

11.5% alc./vol.

IMPERIAL PORTER

Búmm! Hurðaskellir hendist inn úr rökkrinu gegnum gleðinnar dyr og vekur alla sem blunda með látum. Um leið og hann er búinn að koma öllum í betra skap hverfur þessi glaðbeitti jólagestur inn í nóttina og skilur eftir sig hátíðlegan keim af súkkulaði, karamellu og rúgviskíi. Margir gætu spurt sig hvernig standi á þessum látum, en hvernig myndi þér líða ef það væri nýbúið að sleppa þér úr margra missera vist í gamalli tunnu? Þú skilur fyrr en skellur í tönnum.


Innihaldsefni: Vatn, maltað bygg, maltað hveiti, kakóbaunahismi, humlar, ger og vanilla.