NR. 13 MYRKVI

6% ALC./VOL.

PORTER

Myrkvi er svokallað porteröl, sem varð til á skuggalegum hafnarstrætum Lundúnaborgar á 18. öld. Dökki liturinn ræðst af ristaða malt-bygginu sem notað er við bruggunina. Myrkvi er trúr uppruna sínum, enda ósíaður og skilar dimmu og djúpu bragðinu með fullum þunga og þéttri fyllingu.

Sérstaða Myrkva byggir hins vegar á því að sérristað kaffi frá Kaffismiðjunni er notað í bruggunina. Kaffið kemur frá Kólumbíu, nánar tiltekið kaffibóndanum Regulo Martinez í Huila. Myrkvi er því spennandi og dularfullt porteröl með mjúkum kaffitónum og keim af súkkulaði og karamellu. Hreinræktað sælgæti með fínustu steikinni og sætasta eftirréttinum auk þess að vera skuggalega góður einn og sér!


IBU: 45
Plato: 14.5
Humlar: Perle, Cascade.
Annað: Sérristað kólumbískt kaffi.
Innihaldsefni: Vatn, maltað bygg, hafrar, humlar, kaffi og ger.


  • World Beer Awards 2013: Europe best coffee and chocolate flavoured beer
  • World Beer Awards 2014: Europe silver coffee and chocolate flavoured beer
  • Global Craft Beer Award 2014: Silver Chocolate or coffee beer