
NR. 15 SURTUR
9% ALC./VOL.
IMPERIAL STOUT
Sem fyrr er Surtur þykkur og þolgóður, dekkri en sjálft Ginnungagap. Í ár er Surtur undir belgískum áhrifum; þefurinn er ávaxtaríkari en áður og eldristað bragðið byrlað úr þrenns konar geri, hraustlegri maltsætu og herðabreiðum súkkulaðitónum.
Að vanda blæs Surtur til atlögu á þorra; öflugasti vopnabróðir sem völ er á í baráttunni við þorramatinn.
Surtur fer sunnan
með sviga lævi,
skín af sverði
sól valtíva.
Grjótbjörg gnata,
en gífur rata,
troða halir helveg
en himinn klofnar.
- úr Völuspá