NR. 22 KVASIR

9% ALC./VOL.

MJÖÐUR

Að ófyrirsynju hefur íslensk málþróun orsakað að í daglegu máli telst mjöður vera samheiti bjórs. Gríðarlegur munur er hins vegar á bruggaðferð mjaðar og bjórs enda er hefðbundinn mjöður bruggaður úr soðinni og gerjaðri blöndu hunangs og vatns. Svo lengi lærir sem lifir. 

Kvasir er kolsýrður og kristaltær. Hunangið er hrátt appelsínublómahunang sérinnflutt frá Spáni, en með góðum vilja má greina myntu og ögn af vanillu í nefi þó mjöðurinn sé með öllu ókryddaður. Sætur en þurr á tungu.

Í Skáldskaparmálum segir að með sköpun Kvasis hafi friðstefna ása og vana verið innsigluð. Kvasir var svo vitur að enginn spurði hann þeirra hluta er eigi kunni hann úrlausn. Kvasir fór víða um heim að kenna mönnum fræði, og þá er hann kom að heimboði til dverga nokkurra, Fjalars og Galars, þá kölluðu þeir hann með sér á einmæli og drápu. Létu þeir blóð hans renna í tvö ker og einn ketil og blönduðu hunangi. Varð þar úr mjöður sá er hver af drekkur verður skáld eða fræðimaður.