NR. 29 GALAR

8.5% ALC./VOL.

MJÖÐUR

Árið 2013 kynnti Borg Brugghús til sögunnar Kvasi og nú er komið að Galari, sem er kolsýrður og kristaltær. Hunangið er sérinnflutt ávaxtahunang frá Spáni, en með góðum vilja má greina myntu og ögn af vanillu í nefi þó mjöðurinn sé með öllu ókryddaður. Sætur en þurr á tungu.

Að ófyrirsynju hefur íslensk málþróun orsakað að í daglegu máli telst mjöður vera samheiti bjórs. Gríðarlegur munur er þó á þessum tveimur veigum enda er hefðbundinn mjöður bruggaður úr blöndu hunangs og vatns.
Í Skáldskaparmálum segir að með sköpun Kvasis hafi friðstefna ása og vana verið innsigluð. Kvasir var svo vitur að enginn spurði hann þeirra hluta er eigi kunni hann úrlausn. Kvasir fór víða um heim að kenna mönnum fræði, og þá er hann kom að heimboði til dverga nokkurra, Fjalars og Galars, þá kölluðu þeir hann með sér á einmæli og drápu. Létu þeir blóð hans renna í tvö ker og einn ketil og blönduðu hunangi. Varð þar úr mjöður sá er hver af drekkur verður skáld eða fræðimaður.