NR. 3 ÚLFUR
5.9% ALC./VOL.
INDIA PALE ALE
Úlfur IPA sver sig í ætt við það besta sem framleitt er á vesturströnd Bandaríkjanna og kemur eflaust mörgum Íslendingnum í opna skjöldu hvað varðar bragð og lykt. Lyktin er af ferskum sítrusávöxtum, þá sérstaklega greipaldini, sem er einnig til staðar í bragðinu, og öflug beiskjan fær mann til að þrá annan sopa.
Einungis eru notaðir amerískir humlar í Úlf, og humlunum er bætt við í suðu og eftir gerjun sem er svokölluð „þurrhumlun“.
IBU: 60
Plato: 13
Humlar: Columbus, Cascade, Amarillo, Simcoe, Magnum.
Innihaldsefni: Vatn, maltað bygg, humlar og ger.
- World Beer Awards 2012: Europe’s Best IPA
- World Beer Awards 2013: Europe’s IPA
- Global Craft Beer Award 2014: India Pale Ale