NR. 8.1 SURTUR

13% ALC./VOL.

IMPERIAL STOUT

Tunnuþroskaður Surtur er einstakur í röð íslenskra bjóra; dimmleitur Imperial Stout sem hefur verið agaður í frönskum eikartunnum.

Surtur er fyrsti íslenski bjórinn sem fær þessa konunglegu meðferð. Í tunnunum hefur ólgandi krafturinn náð hinu fullkomna göfuga jafnvægi við einstaklega flókið eikarlagt koníaks- og kakóbragðið, með angan af vanillu og kókos.

Tunnuþroskaður Surtur tekur þér fagnandi á þorranum – en eldist líka eins og fínasta koníak!