NR. 9 BENEDIKT

7% ALC./VOL.

KLAUSTURBJÓR

Benedikt er páskabjór í belgískum stíl og er sá níundi í röðinni frá Borg Brugghúsi. Benedikt er koparrauður að lit með angan af ávöxtum. Bragðið er þægilega sætt með léttum og björtum pipartónum, jafnvel negul, í skemmtilegu jafnvægi við beiskju. Bjórinn er grófsíaður til að hámarka bragðupplifunina og getur hann því bæði verið skýjaður og innhaldið smávægilegt botnfall.