NR. C8 CHOCOSOURUS

5.4% alc./vol.

SOUR ALE

Chocosourus, samstarfsverkefni Borgar Brugghúss og hæfileikabruggaranna hjá Tanker Brewery í Tallinn, Eistlandi, er ferskt og spriklandi súröl með súkkulaðikeim. Við bruggunina var meðal annars notað kakóhismi frá Omnom Chocolate. Súr undirtónn kallast á við milt ávaxtabragð og í bakgrunni lúrir svo súkkulaðikeimurinn.

Myndskreyting flöskunnar var í höndum Lóu Hjálmtýsdóttur, Lóaboratoríum.