BJÓRINN OKKAR

Skoða

Nr. 111 Anton

5.0% alc/vol.

Ítalskur Pilsner

Buongiorno! Anton heilsar með ítölskum hreim og fyllir allan október af sínum einstaka andblæ; allt svo stílhreint, ferskt og fínkryddað.

Meira
Skoða

Nr. 110 Kertasníkir

10.5% alc/vol.

QUADRUPEL

Síðasti hefðbundni jólasveinninn slær öllum við og lýsir upp hátíðarnar með guðdómlegum gjöfum sem hann flytur inn beint frá Belgíu. Jóla quad?

Meira
Skoða

Nr. 109 Baggalútur

<0.5% alc/vol.

Jólabjór

Baggalútur er ómissandi hluti jólanna og fangar hinn sanna jólaanda með hugheilli blöndu jólafílings og kósíheita par exelans. Njótist án teljandi vandræða á aðventunni.

Meira
Skoða

Nr. 108 Baggalútur

5.8% alc/vol.

Jólabjór

Baggalútur er ómissandi hluti jólanna og fangar hinn sanna jólaanda með hugheilli blöndu jólafílings og kósíheita par exelans. Njótist án teljandi vandræða á aðventunni.

Meira
Skoða

Nr. 106 Úlfrún

<0.5% alc./vol.

Session IPA

Úlfrún er kraftmikil, líkt og hún á kyn til, margbrotin en mjúk inn við bein. Og nú gengur Úlfrún laus um allt; þófamjúk, þurrhumluð og ýlfrandi ávaxtarík.

Meira
Skoða

Nr. 105 Ástríkur

<0.5% alc/vol.

PALE ALE

Áfengislaus Ástríkur ræður sér ekki fyrir gleði enda ekki lengur bara svona heldur líka hinsegin. Þessi ekta Pale Ale gengur með þér í öllum litum regnbogans til að styðja og fagna fjölbreytileikanum.

Meira
Skoða

Nr. 103 Bríó

<0.5% alc./vol.

WINTER ALE

Búðu þig undir að verða léttari á brún því þetta hárfína bragð, ívafið angan af Mosaic og Columbus humlum, er ný og kraftmikil leið til að vera Bríó. Kalt mat: Það er alltaf gott að vera Bríó.

Meira
Skoða

Nr. 102 Valborg

8.5% alc./vol.

Belgian Tripel

Hún brosir dálítið feimnislega, rjóð í vöngum og angandi af stokkrósum. En undir trúræknu yfirborðinu búa flóknar, belgískar ástríður sem fléttast saman í einkar gleðilega páska.

Meira
Skoða

Nr. 101 Úlfdís

9.0% alc./vol.

Double IPA

Hún birtist í þokunni í ljósgullnum feldi angandi af Simcoe, Simcoe Cryo, Columbus og Azacca Lupomax humlum og íslensku hveiti. Búðu þig undir að ýlfra með henni dulúðlegar nótur af greipi, ananas og sítrus í einstakri tóntegund, hálftóni hærri en D. Takk fyrir myndskreytinguna Chris Sleep.

Meira
Skoða

Nr. 100 Surtur

12% alc./vol.

Imperial Stout

Surtur kemur úr suðri með ný- bakaða sjónvarpsköku, ilmandiaf vanillu, kókos og hlynsírópi. Geymdur, en aldrei gleymdur.

Meira
Skoða

Nr. 99 Skyrjarmurskyrjarmur

8.0% alc./vol.

IMPERIAL BLUEBERRY SOUR

Búðu þig undir rauðustu jól allra tíma því nú verða allir skalar sprengdir með súrrandi bláberjabombu sem lýsir þér leiðina langt fram á farsælt komandi ár.

Meira
Skoða

Nr. 98 Ketkrókur

8.0% alc./vol.

Jólaglögg Sour

Jólin. Þessi obbolitli súri árstími þegar fólk gengur yfir sjó og land til Klapplands og Stapplands – bara til að upplifa hvernig jólaglögg og bjór eru að dansa.

Meira
Skoða

NR. 97 DANIEL

10.7% alc./vol.

Pastry Double Bock

Þessi nýbakaði októberbjór rís sætlega, eins og hið fullkomna deig, upp úr hlynsíróps-viskítunnum til heiðurs stofnanda elsta bakarísins á Íslandi.

Meira
Skoða

NR. 96 HELGA

<0.5% alc./vol.

RASPBERRY SOUR

Áfengislaus Helga er mætt til að slökkva þorsta Íslendinga eins mjúklega og framast er unnt með fersku ávaxtaríku bragði úr ekta hindberjum.

Eins og allt sem kemur frá Borg Brugghúsi er Helga mikið gæðablóð og hún sko ekki týpan sem gerir upp á milli fólks, frekar en nafna hennar í Smjattpöttunum. Hún tekur öllum jafn ljúflega - með sömu áfengisprósentu og nýtínd askja af hindberjum. Helga er litríkasti ávöxturinn á sístækkandi tré áfengislausra bjóra og nýtur sín alveg sérstaklega vel á sumrin, vel kæld og svalandi.

Meira
Skoða

Nr. 95 Arnold

6.3% alc./vol.

Belgian IPA

Þessi bjarti og ávaxtaríki IPA sameinar hefð og byltingu. Belgískt ger rennur saman við Cryo Pop humla og rís upp á páskum til heiðurs verndardýrlingi humlabænda.

Meira
Skoða

Nr. 94 Rósa

8,9% alc/vol.

WILD ALE – 2023 Pink Tequila tunnuþroskuð

Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt, hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.

Vatnsenda-Rósa

Meira
Skoða

Nr. 93 Surtur

11% alc./vol.

Imperial Stout

2022 Bourbon tunnuþroskaður

Surtur er bjór í jötunmóð. Að þessu sinni býður hann upp á kaffi meðan hann safnar kröftum og býr sig undir að fara ljósum logum um heimsbyggðina.

Meira
Skoða

NR. 92 GÁTTAÞEFUR

11.3% alc./vol.

Imperial Stout

Gáttaþefur röltir til byggða í rólegheitunum enda í fullkomnu jafnvægi eftir að hafa þroskast í ferns konar tunnum sem áður innihéldu rauðvín, sérrí, rúgviskí og hlynsíróp. Þessi stórnefjaði skuggasveinn rennur svo sannarlega á lyktina.

Meira
Skoða

NR. 91 FALDAFEYKIR

<0.5% alc./vol.

HINDBERJA OG LAKKRÍSSÚRÖL

Loksins kemst Faldafeykir til byggða! Hans fyrsta verk er að blása þér frískandi súrum jólaanda í brjóst undir hugljúfum tónum frá hinum hátíðlega dúett hindberja og lakkríss.

Meira
Skoða

NR. 90 AUÐUR

8.0% alc./vol.

FARMHOUSE ALE

Þessi eðalborni skörungur kemur í Grand Marnier tunnum angandi af appelsínum og ananas og nemur ný lönd ásamt Kveik og Brett.

Meira
Skoða

Nr. 89 Bríó de Janeiro

4.6% alc./vol.

SUMMER ALE

Finndu fjaðrahaminn og rifjaðu upp sambataktana því nú erum við að dansa!

Meira
Skoða

NR. 88 YLFA

<0.5% alc./vol.

INDIA PALE ALE

Ylfa fer ótroðnar IPA slóðir og lendir strax í óvæntum ævintýrum. Láttu ekki útlitið blekkja þig, því þótt hún sé minni en hin í hjörðinni þá ýlfrar hún og bítur alveg jafn fast.

Meira
Skoða

Nr. 87 Bríó de Janeiro

<0.5% alc./vol.

SUMMER ALE

Finndu fjaðrahaminn og rifjaðu upp sambataktana því nú erum við að dansa!

Meira
Skoða

NR. 86 SATAN

4.2% alc./vol.

SAISON

Hann freistar þín með göldrum gersins og Goldings-humlanna svo þú fellur fram og tilbiður heillandi andblæ af appelsínu, banana og marsípani. Það væri synd að láta Satan framhjá sér fara.

Meira
Skoða

NR. 85 KJARTAN

0.9% alc./vol.

KOMBUCHA

Þessi seiðskratti fullkomnar ráðabrugg sitt með því að hræra engifer og sítrónu út í kjarnmikið te sem hefur fengið að kombucha-krauma í galdrapottinum í tvö ár. Magnað klækjabragð til að svala hefndarþorstanum!

Meira
Skoða

NR. 84 Hrymur

<0.5% alc./vol.

Taðreykt öl

Hrymur kemur að austan á þorranum eins og völvan spáði. Hann er rauðeygður en það er bara út af reyknum.

Meira
Skoða

NR. 83 SURTUR

9.0 alc./vol.

Imperial Stout

Surtur kemur úr suðri og kveikir eld hvar sem hann fer. Hann bíður átekta, safnar kröftum og þroskast. Geymdur, en aldrei gleymdur.

Meira
Skoða

NR. 82 FROÐUSLEIKIR

<0.5% alc./vol. (Áfengislaus)

India Pale Ale

Þessi IPA hringir nýjum jólabjöllum og valhoppar ótroðnar slóðir til byggða með Mosaic, Simcoe, Columbus og Centennial humla handa hverjum sem er. Er hann kannski mesti æringinn af þeim öllum?

Meira
Skoða

NR. 81 SALKA

6.0% alc./vol.

WILD ALE

Þessi byltingarsinnaði skörungur er boðberi nýrrar og ögrandi afstöðu sem hefur fengið að þroskast og dafna í Chardonnay og Sauvignon Blanc tunnum.

Meira
Skoða

NR. 80 GLUGGAGÆGIR

9.0% alc./vol.

DIPA

Þessi hnýsilegi Lemon Cake DIPA ætlar að kíkja á þig um jólin. Þú finnur jafnvel lyktina af öllum sítrónunum sem hann hefur stolið gegnum glerið!

Meira
Skoða

NR. 79.1 EMBLA

10,5% alc./vol.

Imperial Porter

Sköpunarsaga sem hófst á hlynsírópi og sykurpúðum rís til nýrra hæða upp úr Grand Marnier tunnum.

Meira
Skoða

NR. 79 EMBLA

9.2% alc./vol.

Imperial Porter

Hlynsíróp og sykurpúðar eru vissulega guðlegur innblástur – en forboðinn ávöxtur er líka skammt undan.

Meira
Skoða

NR. 78,1 ASKUR

12% alc./vol.

Imperial Stout

Ævaforn guðlegur innblástur hlynsíróps og sykurpúða rís upp á æðra stig úr rúgviskítunnum.

Meira
Skoða

NR. 78 ASKUR

11.6% alc./vol.

Imperial Stout

Ævaforn guðlegur innblástur vekur þig sætlega til lífsins með hlynsírópi og sykurpúðum.

Meira
Skoða

NR. 77 ÁSTRÍKUR

5.0% alc./vol.

PALE ALE

Gakktu inn um gleðinnar dyr með Pale Ale sem glitrar í öllum litum regnbogans. Hvernig á þessi stolti stuðningsaðili Hinsegin daga að vera eitthvað annað?

Meira
Skoða

NR. 76 OTTÓ

5.2% alc./vol.

PILSNER

Þessi vingjarnlegi keisari heilsar þér bísperrtur með nýjum og spennandi humlum sem kallast Talus. Þá fellur þú fram á annað hnéð og finnur indæla angan sem minnir á bleik greipaldin, steinaldin og þurrkaðar rósir.

Meira
Skoða

NR. 75 Bríó Áfengislaus

<0.5% alc./vol.

WHEAT ALE

Fáðu nýjan og kraftmikinn innblástur með fersku bragði beint af akrinum og angan af Mosaic, Citra og Hallertauer Mittelfrüh humlum. Bríó finnur alltaf réttu leiðina til að njóta lífsins lysti- semda. Það er gott að vera Bríó.

Meira
Skoða

Nr. 74.1 SUNNA

1.9% alc./vol.

PALE ALE

Upp með sólgleraugun því þú ert á leiðinni í safaríkt ferðalag með Idaho 7 og Mosaic humlum til suðræna landsins þar sem allir dagar eru Sunnudagar.

Meira
Skoða

NR. 74 SUNNA

5.0% alc./vol.

PALE ALE

Upp með sólgleraugun því þú ert á leiðinni í safaríkt ferðalag með Idaho 7 og Mosaic humlum til suðræna landsins þar sem allir dagar eru Sunnudagar.

Meira
Skoða

NR. 73 SURTUR

11.5% alc./vol.

Imperial Stout

2020 Kókos-romm tunnuþroskaður

Surtur kemur úr suðri og kveikir eld hvar sem hann fer. Hann bíður átekta, safnar kröftum og þroskast. Geymdur, en aldrei gleymdur.

Meira
Skoða

NR. 72 SKÚLI SKÚLI

8.0% alc./vol.

DOUBLE PALE ALE

Skúli Skúli mætir alveg ótrúlega frískur og hlaðinn gjöfum í tilefni fimm ára afmælis Skúla Craft Bar. Þessi Double Pale Ale er að gefa extra mikið af hunangsmelónu, greipaldini og aldinum litkatrésins. Já góðir gestir, það er kominn nýr fógeti í bæinn.

Meira
Skoða

Nr. 71,1 Bjúgnakrækir

1.9% alc./vol.

PALE ALE

Þessi föli bragðarefur humlar jólalögin fyrir okkur öll með sinni mjúku Mosaic, Idaho 7 og Azacca rödd svo við gleymum okkur augnablik.Og einmitt þá nappar hann bjúgunum sem við ætluðum að stelast í fyrir hátíðarnar.

Meira
Skoða

NR. 71 BJÚGNAKRÆKIR

5.2% alc./vol.

PALE ALE

Bjúgnakrækir er einn með öllu: Fölur bragðarefur sem humlar jólalögin svo mjúkri El Dorado og Mosaic röddu að þú gleymir þér augnablik. Og einmitt þá nappar hann bjúgunum sem þú ætlaðir að stelast í fyrir hátíðarnar.

Meira
Skoða

NR. 70 SKÚLI

4.3% alc./vol.

PALE ALE

Skúli er ljós og léttskýjaður og brúkar skeppufylli af Golden Promise malti til að halda vogarskálum Simcoe og Mosaic humlanna í fullkomnu jafnvægi. Svo færðu fágæta angan af ferskjum og nónberkju í kaupbæti!

Meira
Skoða

NR. 69 HELGA

4.7% alc./vol.

RASPBERRY SOUR

Helga var hindberið í einhverju súrasta sjónvarpsefni síðustu aldar. Nú geta allir pattar smjattað á súru hindberi sem bragðast sérstaklega vel í frelsisleit um miðja nótt.

Meira
Skoða

NR. 68 KARL

7% alc./vol.

LAGERBJÓR

Þú grípur andann á lofti þegar Karl lager stígur fram á tískupallana íklæddur haustlínunni sem einkennist af litríku en stílhreinu munstri úr Mosaic, Citra og Idaho 7 humlum.

Meira
Skoða

NR. 67 ÚLFEY

7.5% alc./vol.

INDIA PALE ALE

Citra, Mosaic og Galaxy ýlfra saman í safaríkum kór gegnum skýin alla leið til tunglsins. Já humlarnir eru svo sannarlega ekki í neinni sauðagæru í þessum rándýra IPA.

Meira
Skoða

NR. 66 GUTTORMUR

10% alc./vol.

Imperial Porter

Það hitnar í kolunum í Húsdýragarðinum þegar þessi fullmeyrnaði Imperial Porter tekur sér stöðu við grillið. Skilaðu snuðinu elskan, því Guttormur er fullorðins.

Meira
Skoða

NR. 65 MARÍA

4.8% alc./vol.

WITBIER

Heil sért þú María, full af ilmi. Strálitur er með þér; skýjuð ert þú meðal bjóra; og blessaður sé safaríkur ávöxtur bragðs þíns, sítrus.

Heilaga María, fær þú oss syndugum mönnum maltað hveiti í belgískum anda, appelsínubörk og kóríanderfræ, nú og á dauðastundu vorri.

Amen.

Meira
Skoða

NR. 64 REBEKKA

5.5% alc./vol.

CHERRY WILD ALE

Því svo elskaði Rebekka heiminn að hún hvíldi í Chardonnay-tunnum í þrjú ár uns smæstu örverur heilags anda höfðu unnið sín guðdómlegu kraftaverk. Sælir eru þeir sem meðtaka Rebekku og kirsuber hennar því þeirra er himnaríki.

Meira
Skoða

NR. 63 HALLGERÐUR

6.4% alc./vol.

FLANDERS RED

Hallgerður er rjóð af bræði og kirsuberjum og hleypir öllu í sítrónubál og eikarbrand. Engin furða hvað hún er súr og langrækin eftir dvöl í banyuls-, chardonnay- og rauðvínstunnum í meira en þrjú ár.

Meira
Skoða

Nr. 62 OMMI

9.1% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Lífið er dýrt, dauðinn þess borgun. Drekkum í kveld, iðrumst á morgun. – One love.

1970–2018. #lífiðernúna.

Meira
Skoða

Nr. 61 SURTUR

12.1% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur kemur úr suðri og í þetta skipti renndi hann við í bakaríinu eftir Gunnars kleinuhringjum og sér ekki eftir því.

Meira
Skoða

NR. 60 ESJA

5.7% alc./vol.

WILD ALE

Esja er fjölkunnug og forn í brögðum. Með silfraðri röddu syngur hún leynda dóma náttúrunnar í fínlegan súran seið úr geri sem er galdrað úr vindinum.

Meira
Skoða

NR. 59 SKYRJARMUR

4.3% alc./vol.

BLUEBERRY SOUR

Þótt Skyrjarmur sé ægilega súr í bragði er alltaf stutt í gleðina. Nú arkar þessi blessaði óþekktarangi um holtin köld í leit að nýjum ævintýrum – rauður í framan af óhóflegu bláberjaáti.

Meira
Skoða

NR. 58 HÚGÓ

7.2% alc./vol.

INDIA PALE LAGER

Sniðið á Húgó er fágað og ferskt með hressandi humlum í fóðrinu. Með því að vefja laktósaþræði inn í efnið nær Húgó að skapa lífsglaðan snúning á tímalausri klassík: Klæðskerasaumaðan og safaríkan India Pale Lager trendsetter fyrir haustið.

Meira
Skoða

Nr. 57 BARABBAS

7% alc./vol.

DUBBEL

Syndaselur er hann og dökkur yfirlitum, með vasa fulla af illa fengnum ávöxtum, vinsælli en sjálfur Jesús frá Nasaret.

Meira
Skoða

NR. 56 GISSUR

5.5% alc./vol.

SOUR ALE

Gissur rís svalur upp úr sýrunni og herpir saman á þér andlitið með skínandi beittu ferskjubragði. Og kýlir þig í magann. Út af soltlu.

Meira
Skoða

NR. 55 SURTUR

14.2% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Þessi kynngimagnaða og eldpipraða útgáfa af Surti var þroskuð í bæði búrbon- og koníakstunnum.

Meira
Skoða

NR. 54 HURÐASKELLIR

11.5% alc./vol.

IMPERIAL PORTER

Hurðaskellir hendist inn úr rökkrinu með látum og vekur þá sem blunda vært, en hverfur svo á braut og skilur eftir hátíðlegan keim af súkkulaði og rúgviskíi.

Meira
Skoða

NR. 53 RUMPUTUSKI

4.6% alc./vol.

INDIA PALE LAGER

Það var eitt sinn dvergur sem hét – hvað hét hann aftur, Strump– nei, Stultumóði? Frumpubuski? En hvað sem nafnið var þá spann hann, með lagerger að leynivopni, glóandi gull úr þýskum humlum og möltuðu byggi.

Meira
Skoða

NR. 52 BRJÁNSI

4% alc./vol.

SOUR ALE

Syndsamlega svalandi og ferskur en á sama tíma frekar krefjandi týpa. Alveg ógleymanlegur karakter. Kannski ekki að undra miðað við alla sýruna sem hann hefur droppað. Unnuuur.

Meira
Skoða

NR. 51 ÁSTRÍKUR

4.6% alc./vol.

BELGIAN PALE ALE

Ástríkur snýr aftur, vel búinn belgísku geri og ávaxtaríkum humlum frá Ameríku. Hver sopi tindrar af ljúfum tónum ferskju, ástaraldins, apríkósu, mangós og greipaldins.

Meira
Skoða

NR. 50 ÚLFUR ÚLFUR ÚLFUR

11% alc./vol.

TRIPLE IPA

Úlfur Úlfur Úlfur skrúfar allt í botn, sprengir alla skala, slær öll met, ber sigur úr býtum, er öndverður, æðstur og aðal. Grr. Grr. Grr.

Meira
Skoða

NR. 49 SÆMUNDUR

4.7% alc./vol.

MANGO PALE ALE

Í mjallhvítum, mangómynstruðum sparifötum situr hann á Kexinu með ölglas í hendi. Það er skýjað. Allt eins og það á að vera.

Meira
Skoða

NR. 48 LÚTHER

5.9% alc./vol.

HOPPY BLONDE

Lúther fagnar 500 ára afmæli siðbótarinnar með þýskum humlum, belgískri bjórhefð og blessun íslensku þjóðkirkjunnar.

Meira
Skoða

NR. 47 SURTUR

10% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur kemur úr suðri og kveikir eld hvar sem hann fer. Hann bíður átekta, safnar kröftum og þroskast. Geymdur, en aldrei gleymdur.

Meira
Skoða

NR. 46 GUNNLÖÐ

10.8% alc./vol.

MJÖÐUR

Fagurgylltur mjöður bruggaður úr litháísku fjölblómahunangi hverfur eina nótt. Upphefst æsispennandi eltingaleikur. Gunnlöð er saga um fornar ástir, trúnað, sekt og sakleysi.

Meira
Skoða

NR. 45 ASKASLEIKIR

5.8% alc./vol.

AMBER ALE

Búðu þig undir rauðleit jól. Þetta roðagyllta öl er ívafið glettnum humlum sem gauka að þér hátíðarkaramellum auk þess að vera með safaríkan sítrónukeim í pokahorninu.



Meira
Skoða

NR. 44 HANS

5.5% alc./vol.

RAUCHBIER

Það rýkur úr Hans enda slapp þessi þýski eðal-lager naumlega frá því að enda ævina í bökunarofninum. Allt er gott sem endar vel.

Meira
Skoða

NR. 43 ÁSTRÍKUR

8.5% alc./vol.

STRONG GOLDEN

Ástríkur er gordjöss sem áður en gylltur sem aldrei fyrr. Kraftmikill kjarnadrykkur með keim af perum, ferskjum, eplum og vínberjum.

Meira
Skoða

NR. 42 GÍSLI

4% alc./vol.

SÚRÖL

Gísli keyrir sverðið í höfuð bragðlaukanna og klýfur þefskynið í herðar niður. Þeir sem ganga í fóstbræðralag með Gísla eiga langt og súrt ferðalag fyrir höndum.

Meira
Skoða

NR. 41 MAGÐALENA

8.4% alc./vol.

IMPERIAL WIT

Magðalena er björt mey og hrein en undir léttsýrðu yfirborði appelsínu­marmelaðis og sítrónu­grass býr kjarna­kvendi sem gustar af.

Meira
Skoða

NR. 40.1 HREFNA

11% alc./vol.

BELGIAN STRONG

Þessi Hrefna hreiðraði um sig í Moscatel Roxo tunnu í 10 mánuði og kom þaðan út krunkandi sæt og angandi af víni.

Meira
Skoða

NR. 40 HREFNA

10.5% alc./vol.

BELGIAN STRONG

Hrefna hreiðrar um sig á frönsku eikarspæni og gæðir sér á dimm- bláum krækiberjum, appelsínum og sítrus. Ferfalt krúnk fyrir því!

Meira
Skoða

NR. 39 SKÚLI

5% alc./vol.

RAUÐÖL

Fógetinn er rúbínrjóður í vöngum og ilmar af sætu malti og suðrænum ávöxtum enda frakkinn úttroðinn af karamellum, mangó og sítrus – eins og sést.

Meira
Skoða

NR. 38 SURTUR

10.8% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur fer sunnan
með sviga lævi,
skín af sverði
sól valtíva.
Grjótbjörg gnata,
en gífur rata,
troða halir helveg
en himinn klofnar.

- úr Völuspá

Meira
Skoða

NR. 37 FJALAR

9.6% alc./vol.

MJÖÐUR

Fjalar er gömul saga og ný af bíræfnu bruggarateymi í leit að himneskum samhljómi hunangs og eikar.

Meira
Skoða

NR. 36 POTTASKEFILL

6.2% alc./vol.

BRÚNÖL

Þessi ríkulega humlaði sveinn kemur til byggða ilmandi eins og blóm í haga en í pokahornin hefur hann stungið súkkulaði og toffí. Allt saman pottþétt.

Meira
Skoða

NR. 35 BRÍÓ BRÍÓ

9.6% alc./vol.

IMPERIAL PILSNER

Í þessum einstaklega humlaða pilsner er heill hellingur af bjór, bragðbættur með lífsins lystisemdum.

Meira
Skoða

Nr. 34 ÚLFRÚN

4.5% alc./vol.

SESSION IPA

Úlfrún er kraftmikil líkt og hún á kyn til, margbrotin en mjúk inn við bein. Ýlfrandi ávaxtarík og þurrhumluð þakkargjörð í þína skál.

Meira
Skoða

NR. 33 FREKI

5.5% alc./vol.

BRETT IPA

Frekur til fönksins, beiskur í bragði og ýlfrandi soltinn í sítrusaldin, papaya, ananas og mangó. Komdu spangólandi. Aaúúú!

Meira
Skoða

NR.32 LEIFUR

6.8% alc./vol.

NORDIC SAISON

Sem fyrr leikur lánið við Leif sem er annar bjór Borgar í svokölluðum saison/farmhouse-stíl.

Meira
Skoða

NR. 31 ÞORLÁKUR

7.7% alc./vol.

SAISON BRETT

Þorlákur er af ætt saison/farmhouse bjóra sem er klassískur bjórstíll upprunninn í sveitum frönskumælandi hluta Belgíu.

Meira
Skoða

Nr. 30.2 Krosslafur

27% alc./vol.

Imperial Stout

SVO SKAL BRENNA KROSSLAFS KROSS
KÆFA DRAUG Í SÓTI
LÁTA RENNA RAUÐAN FOSS
REYKTAN – UPPÁMÓTI!

Meira
Skoða

NR. 30.1 SURTUR (2016)

11% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur og göfugur enda þroskaður í brennivínstunnu í 12 mánuði.

Meira
Skoða

NR. 30 SURTUR

9% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Þorrabjórinn 2015 er svo sannarlega rammur að afli og það finnst bæði í lykt og bragði.

Meira
Skoða

NR. 29 GALAR

8.5% alc./vol.

MJÖÐUR

Kvasis dreyra Galar og Fjalar, drógu í tvö ker og ketil. Við hunang þeir blönduðu og brugguðu mjöð, sem býður þeim er drekkur skáldskapargjöf.

Meira
Skoða

NR. 28 ÞVÖRUSLEIKIR

7% alc./vol.

RAUÐÖL

Maður kemur sko ekki að tómum pokanum hjá Þvörusleiki. Í þessu ilmandi góða rauðöli hefur hnossgæti verið troðið í öll horn og gott betur. Ristað malt, eikarþvörur …

Meira
Skoða

NR. 27 GRÉTA

7.3% alc./vol.

BALTIC PORTER

Gréta er hörð í horn að taka enda ekki heiglum hent að samræma fjórar korntegundir; maltað bygg, maltað hveiti, maltaðan rúg og hafra í einum og sama bjórnum.

Meira
Skoða

NR. 26 FENRIR

6% alc./vol.

TAÐREYKTUR IPA

Fenrir er þriðji bjórinn í ört stækkandi úlfahjörð Borgar. Um er að ræða flokk India Pale Ale (IPA) bjóra sem eiga upphaf sitt að rekja til miðrar 18. aldar þegar …

Meira
Skoða

NR. 25 SÓLVEIG

6% alc./vol.

HVEITIBJÓR

Sólveig er er ærslafullt og uppátækjasamt sumarbarn. Dálítið ofvernduð en umfram allt elskuð enda ljósgeislinn sem bregður birtu á allt heimilislífið.

Meira
Skoða

NR. 24 JESÚS

7% alc./vol.

LJÓSÖL

Færa má rök fyrir því að páskabjór Borgar í ár eigi sér tæplega 2000 ára langa forsögu. Töluvert reyndi á fórnarlund og trúfestu brugg­meistaranna …

Meira
Skoða

NR. 23 SURTUR

10% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Helhumlaður og á harðaspretti ríður Surtur til Miðgarðs. Í ár gustar af honum sætbeiskur en kraftmikill keimur af greipaldini, súkkulaði, kaffi og ...

Meira
Skoða

NR. 22 KVASIR

9% alc./vol.

MJÖÐUR

Að ófyrirsynju hefur íslensk málþróun orsakað að í daglegu máli telst mjöður vera samheiti bjórs. Gríðarlegur munur er hins vegar á ...

Meira
Skoða

NR. 21 STÚFUR

2.26% alc./vol.

HÁTÍÐARÖL

Stúfur er afburðagott öl með jólamatnum og ekki síðri á milli mála yfir hátíðarnar. Áfengis­prósentan er aðeins 0.01% hærri en …

Meira
Skoða

NR. 20 TERESA

5.5% alc./vol.

INDIA RED LAGER

Helstu karaktereinkenni Teresu eru suðrænir ávextir; mangó, ferskja, ástaraldin og blóðappelsína ...

Meira
Skoða

Nr. 19.5 Garún Garún

24% alc./vol.

Icelandic Stout

Hringdu kirkjuklukkunum því hún er komin aftur. Ískyggileg að sjá, frosteimuð á hrollvekjandi hátt og loks særð fram úr tunnum sem áður inniheldu brómberjabrandí. Þess vegna er hún svona skelfilega góð.

Meira
Skoða

NR. 19.4 GARÚN

14% alc./vol.

Icelandic Stout

Hún gengur aftur aftur! Eftir að hafa brotist úr viðjum Brennivíns-tunnu, sem áður þroskaði sérrí, skýtur Garún þér skelk í bringu með voveiflegum tónum af sérríi, kryddi og haustberjum.

Meira
Skoða

NR. 19.3 GARÚN

15.2% alc./vol.

Icelandic Stout

Ískyggilegir svipir af súkkulaði, kaffi, lakkrís og vanillu sem hafa brotið af sér bourbon- viðina. Og ganga aftur!

Meira
Skoða

NR. 19.2 GARÚN GARÚN

21% alc./vol.

ICELANDIC STOUT

Enn eru það brögðóttir svipir súkkulaðis, kaffis og lakkríss sem sveima yfir bragð­laukunum og sæta færis, en nú hafa höfugir en sætir tónar eikar og vanillu bæst við.

Meira
Skoða

NR. 19.1 GARÚN

12.5% alc./vol.

ICELANDIC STOUT

Myrkir og margslungnir svipir kaffis, lakkríss, eikar og vanillu sveima höfugir um og sæta færis.

Meira
Skoða

NR. 19 GARÚN

11.5% alc./vol.

ICELANDIC STOUT

Fyrsta konan í Borgarfjölskyldunni er Garún nr. 19 sem er afbrigði af Imperial Stout. Íslenska vatnið gegnir mikilvægu hlutverki í Garúnu ...

Meira
Skoða

NR. 18 ÁSTRÍKUR

10% alc./vol.

KLAUSTURÖL

Ástríkur er kraftmikill hinsegin kjarnadrykkur í belgískum stíl. Notað er sérvalið úrvalsger í Ástrík sem gefur honum mikinn og einkennandi ávaxtakeim ...

Meira
Skoða

NR. 17 ÚLFUR ÚLFUR

9% alc./vol.

DOUBLE IPA

Úlfur Úlfur er dæmisaga um tvöfeldni. Humlarnir leika lausum hala, fjölbreyttir, grimmir og beiskir í bragði! Grr. Grr.

Meira
Skoða

NR. 16.1 JÚDAS

11.5% alc./vol.

QUADRUPEL

Það eru engir páskar án Júdasar. Þessi sterki Quadrupel klausturbjór færir þér hinar hátíðlegu belgísku hefðir svikalaust.

Meira
Skoða

NR. 16 JÚDAS

10.5% alc./vol.

QUADRUPEL

Það eru engir páskar án Júdasar. Þessi dyggi lærisveinn belgísku bjórhefðarinnar tilheyrir flokki svokallaðra quadrupel-bjóra ... 

Meira
Skoða

NR. 15 SURTUR

9% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Sem fyrr er Surtur þykkur og þolgóður, dekkri en sjálft Ginnungagap. Í ár er Surtur undir belgískum áhrifum; þefurinn er ávaxtaríkari en áður ...

Meira
Skoða

NR. 14.1 GILJAGAUR

10% alc./vol.

BARLEYWINE

Giljagaur hefur margt skemmtilegt í pokahorninu, eins og þrenns konar ger og blöndu af slóvenskum og bandarískum humlum ...

Meira
Skoða

NR. 14 GILJAGAUR

10% alc./vol.

BARLEYWINE

Giljagaur er þurrhumlaður, rauðleitur og spennandi bjór af barleywine-ætt, en það eru sterkustu bjórar í heimi.

Meira
Skoða

NR. 13 MYRKVI

6% alc./vol.

PORTER

Myrkvi er porteröl, tegund sem sprottin er af skuggalegum strætum Lundúnaborgar á 18. öld. 

Meira
Skoða

NR. 12 LÚÐVÍK

8% alc./vol.

DOPPELBOCK

Lúðvík er krónprinsinn af Bæjaralandi og hefur þessi eðalborni Doppelbock hlotið útnefningu Borgar Brugghúss sem bjór Októberfest 2012.

Meira
Skoða

NR. 11 SUMARLIÐI

6% alc./vol.

HVEITIBJÓR

Sumarliði er fyrsti þýski hveitibjórinn sem framleiddur og seldur er á Íslandi. Þennan virta og skemmtilega bjórstíl má rekja til Bæjaralands, en þar kallast bjór af þessu tagi ...

Meira
Skoða

NR. 10 SNORRI

5.3% alc./vol.

ÍSLENSKT ÖL

Snorri er þjóðlegt öl. Hann er bruggaður úr innlendu byggi og kryddaður með alíslensku, lífrænu blóðbergi. Snorri er margslunginn og ekki allur þar sem hann er séður.

Meira
Skoða

NR. 9 BENEDIKT

7% alc./vol.

KLAUSTURBJÓR

Benedikt er páskabjór í belgískum stíl og er sá níundi í röðinni frá Borg Brugghúsi. Benedikt er koparrauður að lit með angan af ... 

Meira
Skoða

Nr. 8.19 Surtur

11.5% alc./vol.

Imperial Stout

Surtur kemur í einstaklega góðu jafnvægi úr suðurhöfum angandi af karabískum ananas eftir ljúfa dvöl í tunnum sem áður innihéldu ananasbrandí. Geymdur, en aldrei gleymdur.

Meira
Skoða

Nr. 8.18 Surtur

12% alc./vol.

Imperial Stout

Surtur kemur að sunnan fullþroskaður og mjúkur í bragði með sætum keim af berjum og vanillu eftir vist í tunnum sem áður innihéldu kirsuberjabrandí. Geymdur, en aldrei gleymdur.

Meira
Skoða

Nr. 8.17 Surtur

12.2% alc./vol.

Imperial Stout

2022 Chartreuse tunnuþroskaður

Surtur birtist hér í jötunmóð innblásinn af grænleitum heilögum anda enda þroskaður í Chartreuse-tunnu.

Meira
Skoða

Nr. 8.16 Surtur

12.2% alc./vol.

Imperial Stout

2022 Black Berry Brandy tunnuþroskaður

Surtur birtist hér í jötunmóð og leitar að einhverjum til að berja enda þroskaður í brómberjabrandí-tunnu.

Meira
Skoða

Nr. 8.15 Surtur

13% alc./vol.

Imperial Stout

2022 Brown Sugar Rum tunnuþroskaður

Surtur birtist hér í jötunmóð og sjóræningjaham enda þroskaður í tunnu sem áður hýsti romm úr púðursykri.

Meira
Skoða

NR. 8.14 SURTUR

12.6 alc./vol.

Imperial Stout

Surtur birtist hér í jötunmóð með ávaxtaríkum blæ enda þroskaður í Peach Brandy-tunnu.

Meira
Skoða

NR. 8.13 SURTUR

14.2 alc./vol.

Imperial Stout

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda þroskaður í Pink Tequila-tunnu.

Meira
Skoða

NR. 8.12 SURTUR

11.1 alc./vol.

Imperial Stout

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda þroskaður í kókos rommtunnu.

Meira
Skoða

NR. 8.11 SURTUR

12.2% alc./vol.

Imperial Stout

2020 Hot sauce-tunnuþroskaður

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda þroskaður í Hot sauce-tunnum.

Meira
Skoða

NR. 8.10 SURTUR

12.2% alc./vol.

Imperial Stout

2020 Brennivíns-tunnuþroskaður

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda þroskaður í Brennivínstunnum.

Meira
Skoða

NR. 8.9 SURTUR

13% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda þroskaður í mezcal-tunnum.

Meira
Skoða

NR. 8.8 SURTUR

13.6% alc./vol.

Imperial Stout

2020 Bourbon og Cognac tunnuþroskaður

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda þroskaður í viskí- og koníakstunnum.

Meira
Skoða

NR. 8.7 SURTUR

15% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Rammur að afli en hófstilltur, enda þroskaður mánuðum saman í Islay viskítunnum.

Meira
Skoða

NR. 8.6 SURTUR

13.2% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda þroskaður í rommtunnum frá Martinique.

Meira
Skoða

NR. 8.5 SURTUR

13.2% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur enda hefur hann fengið að þroskast í Armagnac-tunnum.

Meira
Skoða

NR. 8.4 SURTUR

14.5% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur og göfugur enda þroskaður í Single Malt Whisky-tunnu í 6 mánuði.

Meira
Skoða

NR. 8.3 SURTUR

12% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Rammur að afli en hófstilltur og göfugur enda þroskaður í sérrítunnu í sex mánuði.

Meira
Skoða

NR. 8.2 SURTUR

14.5% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur er bjór í jötunmóð. Rammur að afli en hófstilltur og göfugur enda þroskaður í bourbon-tunnu.

Meira
Skoða

NR. 8.1 SURTUR

13% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Tunnuþroskaður Surtur er einstakur í röð íslenskra bjóra; dimmleitur Imperial Stout sem hefur verið agaður í frönskum eikartunnum.

Meira
Skoða

NR. 8 SURTUR

12% alc./vol.

IMPERIAL STOUT

Surtur er þykkt og þolgott öl, dekkri en sjálft Ginnungagap. Undir þykkri froðunni kraumar bragðið af eldristuðu korni og brenndum sykri í anda.

Meira
Skoða

NR. 7 STEKKJARSTAUR

5.7% alc./vol.

BRÚNÖL

Stekkjarstaur er fyrsti jólabjór Borgar Brugghúss. Rauðleitt brúnöl sem bruggað er úr pale ale-, karamellu- og súkkulaðimalti, auk kandíssykurs og hafra.

Meira
Skoða

NR. 6 SKÓGARPÚKI

4.5% alc./vol.

ÍSLENSKUR LAGER

Skógarpúki var sérlagaður fyrir landsfund kornræktarbænda 2010 að ósk Haraldar Magnússonar í Belgsholti ...

Meira
Skoða

NR. 5 OKTÓBER

4.6% alc./vol.

MÄRZEN

Eins og nafnið gefur til kynna er Október árstíðabundinn bjór sem garður var í tilefni af Októberfest, en hátíðina má rekja til ársins 1810 ...

Meira
Skoða

NR. 4 BJARTUR

5% alc./vol.

BLOND BJÓR

Borg fer ekki troðnar slóðir frekar en fyrri daginn. Undirgerjað ger er notað en þó er gerjunarhitinn hærri en gengur og gerist. 

Meira
Skoða

NR. 3 ÚLFUR

5.9% alc./vol.

INDIA PALE ALE

Úlfur IPA sver sig í ætt við það besta sem framleitt er á vesturströnd Bandaríkjanna og kemur eflaust mörgum Íslendingnum í opna skjöldu …

Meira
Skoða

NR. 2 AUSTUR

4.3% alc./vol.

BRÚNÖL

Austur brúnöl er mildöl sem á rætur sínar að rekja til Bretlands og náði þar miklum vinsældum á millistríðsárunum.

Meira
Skoða

NR. 1 BRÍÓ

4.7% alc./vol.

PILSNER

Bríó lyftir brakandi ferskleika upp á æðra plan með hinum einstöku Hallertauer Mittelfrüh humlum frá Bæjaralandi. Andríkur og glaður nýtur hann lysti-semda lífsins. Það er nefnilega gott að vera Bríó.

Meira